Það er nú ekkert svo sem nýtt í fréttum. Ég kláraði prófin 12. apríl og gekk bara mjög vel, held ég alla veganna, er ekki enn búin að fá út úr þeim. Núna eru 8 vikur eftir af skólanum, en þar sem mér fannst mér bara ganga svo vel í prófunum og vonast náttúrulega til að þurfa ekki að taka nein upptökupróf, þá ákvað ég að taka forskot á sæluna og pantaði mér far heim þann 6. júní Ég missi eina viku úr skólanum, en það ætti nú varla að koma að sök þar sem ég get nú sagt að ég hafi bara varla misst úr skóla í vetur að ráði. Þannig að þetta verða bara svona smávegis verðlaun þ.e. að koma fyrr heim. Þetta verður líklegast líka í eina skiptið á meðan ég verð í þessu námi sem ég kemst fyrr heim, því vanalega erum við í prófum líka í lok júní, en ekki í ár.
Mamma og pabbi voru mætt þegar ég kom heim úr seinasta prófinu. Við brölluðum mikið saman, en einbeittum okkur samt mikið að því að taka því bara rólega. Bæði búið að vera mikið að gera hjá mér í skólanum og í garðyrkjustöðinni hjá þeim. Þannig að þetta var bara skemmtileg afslöppun. Við fórum um bæinn, fórum út að borða á Nyhavn, ég fór og sýndi þeim skólann, við fórum til Tölluse að heimsækja vinahjón mömmu og pabba, en pabbi lærði jafnfram garðyrkjuna þar. Síðan elduðum við heima eitt kvöldið voða góðan mat og við mæðgurnar fórum að versla smá Inn á milli þá var bara legið í afslöppun og spjallað um lífið og tilveruna. En þessir 4 dagar liðu ótrúlega hratt og allt í einu voru þau bara farin En það styttist nú samt í það að ég hitti þau og ykkur öll...ég er farin að hlakka svo til, maður er alveg búin að fá nett nóg á að hanga hérna í bili, þó svo að það sé orðið voðalega þægilegt að búa hérna þegar maður er farinn að læra á kerfið.
Helgina sem ég kem heim verður ættarmót í Reykholti og ég ætla að vera heim aí Borgarfirðinum í viku og síðan verður tekin bein stefna í Mörkina. Annars er svo sannarlega komið vor í Danmörku og maður farinn að taka sumarjakkann og næstum því sólgleraugun líka Núna á eftir erum við Broddi að fara til Randers til Skjaldar, Hafdísar og strákanna og verðum þar yfir helgina. Það er Bededag á föstudaginn sem er frídagur og ætlum við að hjálpa þeim að græja nýtt eldhús. En þau voru svo óheppin að verða fyrir því að það fór vatnsleiðsla undir gólfinu hjá þeim og það þurfti að setja allt heimilið á hvolf til að laga það. En í kjölfarið ákváðu þau bara að láta verða að því að breyta eldhúsinu.
Maður er búinn að finna fyrir lækkun krónunnar þó svo að maður sé í Danmörku. Ég fæ nefnilega námslánin mín ennþá á íslenskan reikning og síðan þegar maður er að nota íslenska peninga hérna úti þá þarf maður náttúrulega að borga meira fyrir hverja danska krónu og þess vegna er virkar það fyrir manni eins og allt hafi hækkað hérna úti, þó svo að ekkert hafi breyst mikið hér. En flestir miða við 10 þegar þeir eru að reikna út gengismuninn, en núna undanfarið hefur það hins vegar verið 15-16. Ég fór því að þrýsta á bankann að láta mig fá danskan reikning með Dankorti (það eru þau greiðslukort sem er hægt að nota alls staðar í Danmörku), en þeir eru svo harðir á því að maður megi ekki fá Dankort af reikningnum sínum nema að maður hafi sýnt fram á einhverja veltu á reikningnum í ár En ég er ekki sátt við það, því það bara hentar mér engan veginn, og síðan er ég nú með íbúðarlán í bankanum, þannig að ég pantaði tíma hjá þjónustufulltúanum okkar og ætla að ræða þetta aðeins við hann og athuga hvort ég geti ekki beitt allri minni útgeislun til þess að fá undanþáu
En nóg um það, ég þarf að fara að ná lestinni til Randers...
Stína
Hérna eru nokkrar myndir síðan mamma og pabbi voru hjá mér Nyhavn Á Strikinu: Pabbi, mamma og ég Rådhuspladsen Elduðum heima eitt kvöldið og allir tóku til hendinni Útkoman var rosalega góð
17. apríl 2008 klukkan 15:27
Kristín Þórhallsdóttir 6 athugasemdir
Framhald frá seinsta bloggi... Við Broddi elduðum íslenskt lambalæri um páskana og ætluðum reyndar líka að hafa brúnaðar kartöflur með, sem urðu að kartöfluð með karamelluhjúp Já við erum ekki mjög sterk í að brúna kartöflur. Annars var lítið annað en bara slappað af yfir páskahelgina. Veðrið var heldur ekkert sérstakt, það kom eitthvað páskahret...reyndar eini snjórinn sem lét sjá sig í allan vetur.
Síðan byrjaði skólinn á fullu hjá mér og vinna hjá Brodda. Helgina eftir páska vorum við með villibráðarkvöldverð handa öllum þeim sem hjálpuðu okkur til við flutninginn á dótinu okkar út. Það matarboð heppnaðist alveg fullkomlega að mínu mati...bara umm umm hvað þetta var gott Við Broddi erum ekki alslæm í eldhúsinu En í forrétt vorum við með Klaustursbleikju og grafinn lax frá Íslandi á ristuðu brauði með heimatilbúnni graflaxsósu + eitthvað salat. Í aðalrétt var það síðan íslensk hreindýrasteik og gæsabringur með kartöflugratíni og salati, æðislegri sveppasósu sem Broddi fær hrós fyrir að hafa búið til úr "engu". Síðan í eftirrétt var heit eplabaka með ís...vá ég fæ bara vatn í munninn þegar ég rifja þetta upp.
Núna hins vegar er hafin próftíð númer 3 á þessum vetri og verður vonandi sú seinasta í vetur. Þannig er að vanalega eru 4 próftarnir á einum vetri, en þar sem áfangarnir sem ég verð í núna í vor eru svo stórir og viðamiklir þá klárast þeir ekki fyrr en næsta vetur og þá tek ég lokapróf úr þeim. En ég er s.s. núna að læra undir próf í lífmælingum eða tölfræði...ekkert ægilega skemmtilegt fag. En síðan er það líka erfðafræði, sem er nú mun skemmtilegri. Ég vona bara svo innilega að ég nái báðum þessum prófum því þá losna ég fyrr úr skólanum í júní og get stokkið beint heim, í stað þess að þurfa að hanga hér úti til lok júní til að taka upptökupróf Það yrði ekki vinsælt...en maður yrði bara að taka því eins og maður!
Núna á laugardaginn koma mamma og pabbi í afslöppunarferð hingað út til okkar. Þau ætla nú að koma og kíkja á höllina okkar og auðvitað okkur og ver´ða í 4 daga. Það verður voða kósý að fá þau og ætlum við að reyna að skipuleggja eitthvað til að gera saman hérna úti. annars eru þau nú ekkert stressuð, þau voru nú bæði hérna úti í námi um árið og hafa nú séð meira af Danmörku heldur en ég.
En síðan um viku eftir að þau verða farin þá koma Huldís og Steinar. Þau verða nú bara stutt því ferðnni er heitið áfram til Prag...ekki amalegt. En nóg að gera að taka á móti gestum og ég hlakka ekkert smá til...það styttir líka biðina eftir því að komast heim.
Annað til að hlakka til...þá erum við Broddi líklegast að fara í 5-6 daga hestaferð fyrir norðan í byrjun ágúst. Við vorum 3 héðan úr skólanum, ég, Silja og Elsa sem vorum búnar að vera að láta okkur dreyma um að skipuleggja einhvern tíman hestaferð saman. Og af hverju að bíða? Þannig að við fórum bara strax að skipuleggja þetta, og meira segja allir kallarnir okkar með og síðan hafa nokkrir í viðbót bætst í hópinn. En þetta er ekki alveg búið að smella saman, en stutt í það...þannig að leiðalýsing og annað skipulags- og plansyfirlit kemur síðar.
07. apríl 2008 klukkan 08:30
Kristín Þórhallsdóttir 2 athugasemdir
Það hefur verið í mörg horn að líta hjá okkur Brodda um páskana. Við pössuðum 2ja mánaða gamlan Stóra Dans hvolp einn part úr degi fyrir stelpurnar. Þór og Loki fengu næstum því hjartaáfall við að fá þennan gest. Við skruppum einn sólríkan dag í dýragarðinn. Þar er allt á fullu í framkvæmdum við að stækka fílasvæðið. Við skiptum um baðherbergisvaskaskáp því hann var orðinn svo "myglaður" sá gamli.
Síðan fórum við í sveitina út á Jótland með Sveinu. Hún hefur verið að vinna þar í mörg ár og ég fór með til þess að vinna 3 daga til að leysa af fastráðna fólkið um páskana. Broddi kom með og var mest að skoða fuglalífið og veiðilendurnar í kring, en hann hjálpaði líka til. Bóndanum leyst bara helvíti vel á okkur og vill endilega fá okkur oftar í vinnu. Það var farið á fætur um 6 leitið og unnið fram á kvöld. Við hjálpuðum til við mjaltir á 181 kú Mjaltirnar fara fram í mjaltargryfju með 20 vélum og tekur um 3 klukkutíma. Á búinu öllu eru samt um 400 gripir af sorte og röde danske mælkekvæg og Jersey kýr sem eru heldur minni. Landið allt er um 315 hektarar af túni og ökrum. Auk þess að hjálpa við mjaltir þá sá ég um kálfana og kvígurnar og geld kýrnar. Síðan var Sveina að æfa sig í fangskoðun sem hún er að fara í próf í bráðlega og ég fékk aðeins að reyna fyrir mér líka með hennar leiðsögn. Ég fann nú ekki meira en legháls í þessari tilraunum mínum, en það á samt að vera alveg nokkuð gott í fyrstu tilraun. Annars læt ég fylgja myndir með færslunni og texta með sem sýna lífið í danskri sveit. Á leiðinni heim stoppuðum við í Skandeborg til að fá okkur að borða og gerði Broddi sér lítið fyrir og kveikti í staðnum NB takði eftir því að hér átti Broddi í hlut en ekki ég, sem þykir fágætt En hann lagði óvart sérvettubúnt yfir logandi kerti. Honum tókst með snarræði að slökkva eldinn Broddi hetja.
Emmm núna sitjum við bara heima í mestu makindum og erum að gæða okkur á páskaeggjum sem við fengum sent að heiman og Broddi er að láta mig hlusta á upptökur af dönskum fuglahljóðum og er að láta mig læra hvað afuglar eru þar á ferð Málshættirnir voru: Í myrkvi eru allir kettir eins á lit Betra er brjótsvit en bókvit ...þar hafiði það
Nýja kattatréð handa strákunum Þeir fíla það alveg í ræmur Svona var stemmingin þegar við vorum með hvolpinn í pössun Stóri Dans hvolpurinn Hún var mjög liðtæk í að hjálpa Brodda að skipta um baðherbergisvaskaskápinn Sólríkur dagur Hvernig ætli þessari líði í afturendanum? Tasmaníuskolli Flottir andlitssvipir Kalli kanína mættur?? Kiðlingarnir eru mestu snillingarnir í dýragarðinum að mínu mati Jæja mjaltirnar nýbúnar Að þrífa mjaltargryfjuna eftir mjaltir og moka skít af legubásunum Stærðarmunur á sort dansk mælkekvæg og Jersey kú Lofti tappað af kálfi Einstaklingshús fyrir kálfa til að verjast smiti Ég að gera kraftföder klárt handa kálfunum Kálfahúsin Sveina að sópa að með liðléttningnum Í kvígu og geldkúa fjósinu Einn 6 ára á Bobcat Sveina að fangskoða Að lýsa því fyrir mér hvað á að finna Ég síðan að reyna að finna út úr þessu Bærinn Heima á hlaði (það snjóaði í annað skipti þarna í vetur) Flaggað okkur til heiðurs? Stóra Beltisbrúin
23. mars 2008 klukkan 14:36
Kristín Þórhallsdóttir 4 athugasemdir
Hlaupársdagur: Hér á landi er sá siður einkum bundinn deginum að konur geta beðið sér eiginmanns, hann má ekki neita hjúskapnum, en getur keypt sig lausan gegn gjöf eða gjaldi.
Ap jún sept nóv. Þrjátíu hver. Einn til hinir kjósa sér. Febrúar tvenna fjórtán ber. Frekar einn þá hlaupár er. Þessa vísu styðjast margir við til að rifja upp lengd mánaðanna, færri vita kannski að hún sást fyrst rituð í rímtali Guðbrands biskups Þorlákssonar og Arngríms Jónssonar lærða frá 1597 og mun vera eftir síra Ólaf Guðmundsson á Sauðanesi. Þetta kemur fram í bók Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings, Sögu daganna.
Í bókinni má nálgast ýmsan fróðleik um hlaupársdaginn. Heiti hlaupársins er komið úr fornensku og því samstofna enska heitinu leap year, það mun dregið af því að dagsettar hátíðir hlaupa yfir einn vikudag milli ára. Heimildarmenn Árna, einkum af Vesturlandi könnuðust við að eldra fólk vildi síður byrja á nýju verki á þessum degi, og hafði jafnvel illan bifur á hlaupárinu öllu. Sumir töldu að einstaklingar sem fæddust á hlaupársdag yrðu heilsutæpir, minni máttar og hætt við slysum. Aðrir sögðu hins vegar að þeir eltust hægar og yrðu langlífari en aðrir.
Guð ég vissi þetta ekki, vona nú að það síðarnefnda eigi við mig þó mér sé nú samt oft hættara við slysum (samt þó ég sé stundum óheppin þá hefur nú sjaldan hlotist slys af).
En ég verð þá bara að bíða í 4 ár í viðbót þ.e.a.s. ef Broddi verður ekki búinn að bera upp spurningua áður Ætli hann myndi reyna að kaupa sig lausan með gjöf eða gjaldi? Það þyrfti þá að vera eitthvað almennilegt
18. mars 2008 klukkan 13:57
Kristín Þórhallsdóttir 2 athugasemdir
Langt síðan að maður hefur skrifað eitthvað hér, þannig það er eins gott að ég bæti úr því.
29. febrúar þá hélt ég upp á afmælið mitt og við Broddi héldum í leiðinni innflutningsboð með að bjóða Íslendingum + 2 Dönum sem ég hef kynnst hérna úti (aðallega úr skólanum) í kökuboð. Ég átti frí í skólanum þennan dag og dagurinn fór BARA í það að baka ofan í liðið. Það gekk svona upp og ofan í því en lokaniðurstaðan var FRÁBÆR að mínu mati og allra hinna líka held ég bara...alla veganna þá kláraðist allt! Niðurstaðan var s.s.: Pavlova (marengs kaka með hindberjum), jarðaber í fondue, heitur eplaréttur, 2x heitur brauðréttur, 2 mismunandi súkkulaðikökur með kremi og berjum, ávaxtaskálar, snakk, íslenskt nammi og gos að drekka (og fólk mátti koma með bjór eða eitthvað annað þ.h.)...þetta hvarf ofaní 17 manns Við fengum síðan fullt af flottum pökkum og segjum við bara margfalt takk fyrir okkur
Kvöldið eftir fórum við á opnun nýrrar íslenskrar tískuvöruverslunar, Birna, sem er líka til heima á Skólavörðustíg. Broddi hafði verið að vinna við að koma búðinni í stand vikurnar á undan. En eitt kvöldið þegar hann var að vinna í búðinni þá varð hann fyriri því leiðinlega óhappi að nýja hjólinu var stolið fyrir utan búðina Hjólið var samt sem áður læst og við sem höfðum meira að segja keypt viðurkennda lása sem voru fokdýrir á hjólin okkar. En allt kom fyrir ekki hjólið er horfið fyrir fullt og allt...frekar sorglegt því þetta var flott hjól Þannig er þetta bara hérna úti, ef einhver ætlar að stela hjólinu þínu þá skiptir greinilega eingu máli með hvernig lás maður er með, en fólf sem stundar þetta gengur um með klippur til að klippa á lásana. Broddi greyið varð því að bíta í það súra epli að vera hjólalaus í viku og taka milljón lestar og strætóa til að komast til og frá vinnu, en hann var þá að vinna einhvers staðar lengst í burtu. En núna er hann kominn á gamalt fjallahjól sem hann fékk hjá Íslendingi sem hann var að vinna með og er sá hættur að nota það þar sem hann er farinn heim til Íslands.
Síðan var afmælisboð hjá Elsu og Íbba, og veitingarnar voru nú ekki síðri þar. Fyrr um daginn fórum ég, Broddi og Silja á sex messu í Valby Já það var svona kynlífshjálpartækjasýning...mjög fróðlegt he he. En við festum kaup á einhverjum ægilegum kynlífspíski með lófa á endanum Þetta var sem sagt afmælisgjöfin til Elsu og Íbba þar sem þau eru nú bæði hestafólk þá fannst okkur pískur gjöf við hæfi
Lilja sem var með mér úti í Kenya er búin að vera hérna úti í verknámi og við erum búnar að fara 1x í Fields saman (stærsta mollið á Norðurlöndum). Síðan kom Daði vinur okkar, (kokkur og veiðifélagi Brodda) í heimsókn til okkar. Hann var hérna úti að elda ofan í fólk frá utanríkisráðuneytið því það var verið að taka í notkun nýjan 700 fermetra sendiherrabústað hérna í Köben. Við buðum honum í mat eitt kvöldið og fórum saman út að borða annað kvöldið...og hann kom með páskaegg og annað góðgæti handa okkur....namminamm Annars er hann og Unnur konan hans nýbakaðir foreldrar og er búið að skíra frumburðinn Friðrik.
Núna í vikunni bauð Danni (hálf danski Íslendingurinn í bekknum okkar) okkur Söru og Ebbu og reyndar Silju líka sem komst ekki, í siglingu á bátnum sínum sem hann btw býr í og er búinn að búa í í allan vetur! Hann leigir pláss fyrir hann á Christianshavn. Við sigldum að Nyhavn fram hjá íslenska sendiráðinu, framhjá Óperuhúsinu, Amelienborg (konungshöllinni) og að Litlu hafmeyjunni. Þó maður hefði nú séð þetta flest áður, enda þekktir túristastaðir, þá var samt mjög gaman að sjá þetta frá svona öðru sjónarhorni. En báturinn var bara helvíti kósý og það liggur bara hreinlega við að maður öfundi hann á að búa svona, soldil svona skálastemmning.
Á morgun byrjar páskafrí hjá mér Það eru einhverjir 10 dagar og Broddi fær frí yfir helgidagana. Við erum svona að velta því fyrir okkur hvað við eigum af okkur að gera um páskana en við erum með bílinn frá Skildi og Hafdísi, þar sem þau verða heima á Íslandi um páskana. Það kemur sterkt inn að fara yfir til Jótlands um helgidagana. Annars fer mestur tíminn af fríinu hjá mér að læra, enda próf fljótlega eftir páska. Alltaf svona...próf fljótlega eftir frí þannig að maður nýtur frísins ekki beint En þessi próf eru lokin á blok 3, næst seinustu blokkinni á þessum vetri.
Kveð að sinni og læt fylgja nokkrar myndir VH Stína
Elsa og Íbbi að gæða sér á kræsingunum í kökuboðinu Stelpurnar á 2. ári: Unnur, Sonja og Sigrún Mads og Hildur Ösp úr NIH Sara (í stuði), Laetitia og Sveina Um borð í bátnum hand Danna: Sara Ég og Ebba sem mætti með Tópasinn Og Danni sjálfur
13. mars 2008 klukkan 18:17
Kristín Þórhallsdóttir 3 athugasemdir
Það sem er í fréttum eftir þessa viku: Broddi var að vinna 13 tíma á dag og ég alltaf í skólanum eða heima að læra. Var farin að leiðast einveran og ákvað að fara í kattaathvarf, fyrir munaðarlausa ketti, og tók að mér, ekki einn, heldur tvo kettlinga Annar heitir Þór og er svartur með hvítar loppur og ,,blesu". Hann fæddist sem villiköttur og var því ekki vanur mikilli umgengni við fólk. Hann var því mjög styggur þegar ég fékk hann og með lítið hjarta en ég er með hann á sjálfsstyrkingarnámskeiði og hann stendur sig mjög vel. Hinn er kolsvartur og heitir Loki. Hann er fjörugur og kjarkmikill, ekki einu sinni hræddur við ryksugur Eina er að hann ,,spjallar" alveg ótrúlega mikið. Alltaf þegar hann sér mig byrjar hann að mjálma og fer ekki frá mér. Liggur ofan á skólabókunum mínum þegar ég er að læra eð legst ofan á lyklaborðið á tölvunni þegar ég er í henni. Þarf mjög mikla athygli og hann elskar að horfa á sjálfan sig í speglinum
Broddi ætlaði ekki alveg að fallast á þessa ættleiðingu fyrst, ekki þekktur fyrir að vera mikill kattamaður. Mér tókst að fá hann til þess, sagði að þetta væri mikilvægur hluti af náminu fyrir mig Þó að ég viti að hann vilji nú ekki að það spyrjist út, þá verð ég samt að segja það að hann elskar þá núna báða tvo út af lífinu. Alltaf að hlúa að þeim og leika við þá. Það er meira að segja orið það ,,slæmt" að hann kemur næstum of seint í vinnuna á morgnana því hann er að spjalla svo mikið við þá
En ég er alveg á fullu í góðverkum: ættleiði munaðarlausa kettlinga og síðan pantaði ég flug handa Brodda heim þann 2. maí. Hann var búinn að ákveða að fara svona snemma heim og byrja að vinna í undirbúningsvinnu fyrir FÍ. Ég náði síðan svona afmælistilboði hjá Icelandexpress þennan dag og verðið alveg helmingi ódýrara.
Síðast en ekki síst þá á ég alvöruinni afmælisdag á morgun Mín bara búin að lifa í 24 ár og á núna minn sjötta afmælisdag. Í tilefni af því verður veisla heima hjá okkur og enn meira tilefni þar sem við erum loksins búin að koma okkur svo vel fyrir í íbúðinni, þannig að þetta verður líka innflutningsboð.
Hlakka mjög mikið til morgundagsins
Stína
Þór og Loki Ég að velja kettlingana í kattaathvarfinu Venjulegur skóladagur: Silja, Ebba og Sigrún að kryfja ref
28. febrúar 2008 klukkan 20:02
Kristín Þórhallsdóttir 13 athugasemdir
Eins og margir hafa kannski heyrt um í fréttum nýverið þá haf averið óeyrðir í Kenya vegna forsetakosninganna sem voru þar fyrir, ég veit ekki alveg hvað það er oðnar margar vikur síðan. Ég hef verið að hlusta á og lesa fréttir um þessar óeyrðir og heyri sífellt nefnda staði, þar sem óeyrðirnar hafa náð til, sem ég heimsótti með stelpunum þegar við vorum þarna úti í hjálparstarfinu í sumar. Áður en við komum heim frá Kenya þá ákvöddum við að hefja fjáröflun til að styrkja samtökin, sem við unnum fyrir, með sjúkrabíl. Þetta fékk ég í tölvupósti fyrir nokkru síðan þar sem Jonah, sem er yfir þessum samtökum úti í Kenya, sendi á alla sem hafa komið nálægt þessu starfi til að lýsa ástandinu eftir þessar óeyrðir og biður í leiðinni um handbært fé til aðstoðar. Hann þakkar okkur stelpunum, sem fórum saman í sumar, sérstaklega fyrir söfnunina fyrir bíl sem er nú verið að breyta í sjúkrabíl. Kíkið á þetta hér fyrir neðan...við erum sem sagt The Icelandic students, Lilja and co:
Circular Update The most important thing is that we are alive and all our clinics are in operation so far only two of our staff has been displaced back in their rural homes in Rift Valley. Their homes were burnt and now their families are camping at the nearest police station. Many companies have laid-off many of their staff. Tourism has been very much affected and several hotels have closed down both in the Game parks and the Coast. Coming back to issues of PROVIDE latest update is that we have managed to pay out staff allowances for the month of December and we have also paid out some for January. However what PROVIDE really needs is funds to buy medicine. So please note that whatever funds one may wish to donate we shall put it towards medicine. We wish to THANK all of you who have continued to support us with money to keep the programs going during these hard times. If you have any fundraising ideas to assist, please share them with others. Trips to Kenya to work in the clinics have been temporarily suspended until much later. NB: ICELANDIC students have managed to get us a very good vehicle which will be converted to an Ambulance. BIG THANK YOU to Lilja and co. You have given hope to many who could have died. Thank you, Jonah Kitheka
Manni líður ótrúlega vel að heyra svona, að maður hafi virkilega orðið að liði. Verð svo sátt við sjálfa mig. En fyrst og fremst þá er þetta öllum ykkur að þakka sem brugðust við þessari fjáröflun okkar og styrktu þetta málefni. Langaði að sýna ykkur fram á það að þetta hafi skilað sér.
Kær kveðja Stína
23. febrúar 2008 klukkan 13:46
Kristín Þórhallsdóttir 1 athugasemd
Erna Margrét kom og var hjá okkur um seinustu helgi. Við byrjuðum á að draga hana með okkur í IKEA því okkur vantaði svo borðstofuborð svo að við gætum nú öll 3 setið og borðað saman um helgina. Fengum bílinn lánaðann hjá Elsu og Íbba og enn og aftur tókst okkur að villast á þessum 16 km sem eru út í IKEA...við erum greinilega ekki alveg að meika það á hraðbrautunum En okkur tókst á endanum að finna IKEA og vorum fljót að finna borðið, enda búin að velja það áður. Hentum því í bílinn og brunuðum heim. EN...síðan þegar Broddi fór að setja borðið saman haldiði þá ekki að það hafi vantað eina löppina undir borðið og borðplatan, sem er sett saman úr 2 plötum, var mislit Allir héldu samt ró sinni og ákveðið var að hringja í IKEA og athuga hvort það væri ekki hægt að redda þessu. Það kostaði mörg símtöl og bið eftir að fá samband við þennan og hinn. Loksins fengum við samband og greindum frá því sem var að og hvort það væri möguleiki að fá nýja plötu og eina löpp. Þá var því hreytt framan í okkur að þetta væri alfarið okkar vandamál, að við ættum borð með mislitum plötum og þremur löppum og þau gætu ekki gert neitt í því Ég ætlaði varla að trúa þessu, en þetta endurtók manneskjan í símanum aftur og aftur. Við vorum nottla ekki sátt og fórum að rökræða þetta aðeins og bentum manneskjunni á að í símanum heyrðist, á meðan við biðum, að fólk væri hvatt til að koma með ábendingar til að bæta þjónustuna hjá IKEA. Hún fór þá að vera samvinnuþýðari en þetta átti fyrst að vera svo mikið vesen. ÞAð átti ekki að vera hægt að senda eina löpp, heldur þyrftum við að koma með hinar þrjár og þá væri hægt að fá nýjan pakka sendan með 4 löppum og eitthvað og að borðplöturnar væru bara oft mislitar og það ætti að vera svoleiðis (Borðið í listanum og útstillingin í búðinni voru nú samt ekki svoleiðis, og þess vegna valdi ég nú þetta borð...hefði kannski endurskoðað það ef ég hefði vitað það). Eftir endalaust þvaður var ákveðið að senda EINA löpp til okkar í pósti og við þurfum að sætta okkur við að plöturnar séu mislitar Við bíðum enn spennt eftir því að þessi löpp komi í pósti og erum alveg eins viðbúin því að þurfa að greiða sendingarkostnað og hvað annað.
Svona til gamans þá hringdum við í IKEA heima og spurðumst fyrir um það sama...heyrðu það átti bara að koma einhver samdægurs og kippa þessu í liðinn. Við buðum þeim frá Íslandi því að reyna að vera fljótari að redda þessu borði fyrir okkur heldur en IKEA sem er 16 km frá okkur...þeir tóku bara vel í það, en samt var ákveðið að vera ekkert að því og sjá bara til Um helgina fórum við með Ernu í búðir, það var nefnilega eitt af markmiðum ferðarinnar hjá henni að versla, síðan var rölt um bæinn, fórum að borða á Det lille Apotek, sem er svona sögufrægur staður og fórum líka á safn. Erna bauð okkur síðan út að borða á Ástralska veitingastaðnum Reef´n Beef. Þar var svo fáránlega góður matur. Fengum Tasmanian lax, krókódíl, kengúru og 5 súkkulaðirétti í desert. Ég held svei mér þá að kengúrukjöt sé bara orðinn uppáhaldsmaturinn minn núna (samt fyndið að segja frá því að ég smakkaði kengúrukjöt í fyrsta sinn uppi á fjöllum á Íslandi). Á meðan við sátum þarna inni þá fannst mér ég kannast við hóp af fólki inni á staðnum. Það kom á daginn að það voru Íslendingar...en ég gat ekki munað hvar ég hafði séð allt þetta fólk. Ég fór að njósna og komst að því að þarna sat starfsfólk Hyrnunnar í Borgarnesi og var í staffaferð í Köben
Eftir matinn hittum við stelpurnar og það var aðeins kíkt á tjúttið...erum búin að uppgvöta snilldarstað niðrí bæ: Den glade gris Annars var helgin bara ljúf, bara tekið rólega. Reyndar voru miklar óeyrðir í allri Danmörku um helgina því innflytjendur voru að mótmæla því hvernig væri komið fram við sig. Þessi mótmæli voru í tilefni þess að eitt ár (held ég) var liðið frá myndin fræga af Mohammed birtist í Jyllands posten. Við urðum aðeins vör við þetta því löggan var út um allt, stoppaði okkur einu sinni og spurði okkur hvaðan við kæmum og hvort við hefðum séð einhverja gaura sem þeir voru að leita af. Það var síðan reynt að kveikja alls staðar í og rúður brotnar, t.d. lenti lestarstöðin okkar soldið illa í því
En það er allt orðið rólegt núna og það heldur bara áfram að vora eftir þennan milda vetur sem var. Okkur Brodda langar soldið til að kíkja út á jylland um helgina og hitta Skjöld og fjölskyldu...það er bara svona á umræðustigi.
Ætla að fara að læra...
20. febrúar 2008 klukkan 12:44
Kristín Þórhallsdóttir 2 athugasemdir
Náði öllum prófunum á blok 2 og við erum komin með íslenska leigjendur af íbúðinni okkar í sumar Á döfinni er klipping hjá honum Benna okkar og síðan strípur í framhaldi af því...núna á að losna við þetta slys sem kom fyrir hausinn á mér...græna slykjan poppar nefnilega alltaf upp svona öðru hvoru Síðan er Erna Margrét að koma í heimsókn um helgina og það er verið að setja upp skipulag fyrir það.
Með vorinu munu Huldís vinkona og Harpa frænka birtast frá Íslandi og núna eru stelpur úr hjúkkunni hér úti í verknámi...þannig það er nóg að gera og bara spurning: Hvenær ætlar þú að koma í heimsókn?
Í skólanum er ég alltaf að kryfja refinn minn og núna var mér að hlotnast hundabeinagrind...fer að æfa mig eitthvað á henni
Það verður örugglega ekki gert neitt um páskana, búin að vera á svo miklum þvælingi undanfarið, en Broddi mun líklegast skella sér heim í byrjun maí og ég veit ekki alveg hvenær ég mun birtast á klakanum.
Bara svona smá update
See you Stína
12. febrúar 2008 klukkan 16:53
Kristín Þórhallsdóttir 5 athugasemdir
Þegar við komum heim úr skíðaferðinni til Austurríkis þá beið allt dótið okkar sem kom með gámnum eftir okkur. Vá ég er ekkert smá kát yfir því að vera búin að fá allt dótið og að fá loksins einhver húsgögn inn í þessa íbúð. Og ég tala nú ekki um að núna fyrst eftir 8 mánuði sofna ég í rúminu mínu á hverju kvöldi
En já skíðaferðin var mögnuð. Við Broddi tókum lest strax eftir seinasta prófið mitt til Muenchen. Þetta var næturlest og við höfðum pantað okkur 6 manna káetu og lentum með 3 Dönum og einum Jamaikamanni. Það upphöfust skemmtilegar umræður á milli okkar langt fram á nótt. í Muenchen var síðan farið í lest til Salzburg. Þaðan með lest til Radtstadt og þaðan með skibus til Flagau og síðan taxi til Wagrain. Já soldið langsótt en samt ódýrara heldur en að fljúga. Heimferðin var aðeins skárri því þá gátum við fengið að sitja í rútu Heimsferða alla leið til Salzburg og síðan sama leið heim.
Þegar við mættum til Austurríkis þá var bara bandvitlasut veður og krakkarnir, Elva+Arnar og Svava+Stefnir, sem voru komin út á undan okkur var ekki hleypt í fjallið vegna veðurs. Það rættist sem betur fer úr veðrinu og við gátum skíðað og brettast í 5 daga í frábæru veðri. En það var mikið talað um þetta brjálaða veður í fréttunum þarna úti og sýndar myndir af húsum sem eyðilögðust og tré sem rifnuðu upp með rótum.
Suma morgnanna virtist vera alveg ægilega skýjað þegar við vorum á vappi niðrí bæ og á leiðinni að taka kláfinn upp. En í vissri hæð fór kláfurinn með okkur yfir skýjahuluna og þar fyrir ofan var bara sól og blíða. Þetta var svona nálægt himnaríki þar sem við vorum að renna okkur í góða veðrinu og bara ský fyrir neðan okkur Síðan ef maður fór of neðarlega þá lenti maður í þéttri þoku. En nóg um það..við vorum að æfa smá stökk og reyna one eighty. Það gekk svona mis vel hjá okkur, en ég held að Broddi hafi átt momentið. Við höfðum fundið svona náttúrulegan ramp og vorum að stökkva af honum. Við öll á brettum nema Broddi á skíðum (reyndar prófaði hann bretti í ferðinni og náði bara nokkuð langt á því). En Broddi sem sagt kemur á fleygiferð í rampnum og ætlar að gera eitthvað ægilegt...reyndar varð þetta ægilegt en kannski ekki það sem hann ætlaði sér Hann kemur þarna á blússandi siglingu og ætlar að fara að stökkva...en þá stingast bæði skíðin inn í stökkpallinn og Broddi flýgur af þeim í lausu lofti baðandi skíðastöfunum í allar áttir og lendir á bólakafi inní skafli Hann slapp með minniháttar meiðsli, aðeins skrámu inní munninum??? En Guð hvað það var fyndið að sjá þetta...skíðin eftir í stökkpallinum og flugið sem Broddi tók og með skíðastafina með sér og N.B. þetta náðist allt á filmu!
Við vorum mest að renna okkur á sama svæði og í fyrra, en 2 seinustu dagana fórum við á nýtt svæði þar sem var fullt af púðri og brettagarður með fullt af römpum og stökkpöllum. Það var mjög gaman og seinasta kvöldið var, eins og í fyrra, kíkt á gógó píu kvöld á einum pöbbnum. En þá eru einhverjar stelpur að djamma fáklæddar á staðunum.
En því miður leið þessi skíðaferð, sem var svo sjúklega skemmtileg og núna er ég byrjuð á blok 3 í skólanum (næst seinasta blok þessarar vetrar). Er að taka tölfræði, erfðafræði, anatomi (líffærafræði) og lífeðlisfræði núna og líka að bíða eftir einkunum úr janúar prófunum. En það er bara mjög gaman í skólanum núna, erum t.d. að kryfja sænskan ref sem við ,,eigum". Í vikunni áttum við að skoða alla vöðvana sem eru í skulderbæltet...en við verðum með sama refinn alla blokkina og ég held líka þá næstu og munum því á endanum kryfja hann til mergjar
Það verður töluvert um gestagang hjá okkur Brodda í febrúar og síðan á ég afmælisdag í mánuðnum (alltaf að tönglast á því, en svona er þetta þegar maður á aðeins afmæli á fjögur ára fresti).
Síðan vorum við Broddi að sækja um það að skrá okkur saman í sambúð...það kemur líklegast betur út upp á skatt og annað á meðan við erum hérna úti
Um mig: Er fædd og uppalin á Laugalandi í Borgarfirði. Kærastinn er Broddi frá Kirkjubæjarklaustri. Erum búsett í Kaupmannahöfn núna á meðan ég er í námi. Annars erum við skálaverðir í Langadal, Þórsmörk á sumrin.