Farin í Mörkina
Já þá er ég bara að fara að leggja í hann...er að fara frá Selfossi og inn í Mörk og ekki verður von á mér í byggð amk næstu 2 vikurnar til að byrja með, þannig að ég get ekki lofað mikilli hreyfingu hérna á síðunni í sumar...er nefnilega netlausFyrir utan það að hafa verið heima í sveitinni þessa viku, þá var ég boðuð á fund með Almannavörnum. Þar var farið yfir það hvað myndi gerast og hvernig við skálaverðir ættum að bregðast við ef Kötlugos yrði. Eftir þennan fund þá gerði ég mér það ljóst að ég er bara í stórhættu og verð líklegast innilokuð í Þórsmörkinni ef að Katla gýs
En smá fróðleikur:
Katla gýs að meðaltali tvisvar á öld, síðast staðfest árið 1918, en eldgos eru mun sjaldgæfari í Eyjafjallajökli. Eldgosum í Kötlu og Eyjafjallajökli fylgja hættur á borð við eldingar, gjóskufall og jökulhlaup. Vatnasvæði Kötlu eru þrjú og geta snögg og vatnsmikil jökulhlaup ruðst fram Mýrdalssand, Sólheimasand og Markafljótsaura, allt eftir staðsetningu eldgoss. Eldgos undir Eyjafjallajökli geta átt upptök hvar sem er í eldkeilunni og jökulhlaup geta komið fram mjög fljótt eftir að gos hefst.
Viðbragðaáætlanir almannavarna snúa m.a. að viðbrögðum við gjóskufalli og jökulhlaupum, t.d. með lokun svæða fyrir umferð. Þegar eldgos hefst í Kötlu eða Eyjafjallajökli verður að rýma þau svæði sem líklegt er að jökulhlaup geti ógnað. Íbúar og þeir sem dvelja þar þurfa því að þekkja viðbrögð við eldsumbrotum í eldstöðvunum, undirbúa viðbrögð sín, ásamt rýmingu og skipuleggja hana, s.s. hvað skal taka með og hvert skal halda. Sjá meira á www.almannavarnir.is
Á laugardaginn keyrðum við pabbi hrossin sem ég mun taka með í hestaferðina í sumar, vestur á Mýrar og riðum fjörur svipaðar Löngufjörum, svona með ljósum sandi. En við keyrðum hrossin að Ökrum og riðum nes sem heitir Akranes (samt ekki Skaginn

Goði (undan Kolfinni frá Kjarnholtum I)

Pabbi með Leiftur og Glettu

Ég á Goða

Selurinn

Svartbaksungi að líta dagsins ljós



Spor í sandinum

Gletta (undan Feyki frá Hafsteinsstöðum) er í trimmi eftir folaldseign síðasta sumar

Pabbi

Leiftur "óþekki" (undan Oddi frá Selfossi)
Vonast til að sjá sem flesta í Þórsmörkinni í sumar og btw þá er ég í Langadal og síminn þar er , gott að hafa það á hreinu
Kv. Stína
16. júní 2008 klukkan 10:36
Kristín Þórhallsdóttir
Kristín Þórhallsdóttir
