Neikvćđur janúarmánuđur
Sælt veri fólkiðJæja núna tek ég mig á og ætla að endurlífga þessa bloggsíðu (það hlýtur að takast þar sem ég er með nýlegt próf í endurlífgun
)
Ég ætlaði s.s. að taka mig á um áramótin, alltaf gott að miða við þau. Setti mér áramótaheit um að þetta árið ætla ég að vinna í því að vera jákvæð, en...síðan var janúarmánuður bara svo neikvæður að mér tókst ekkert að vera jákvæð og nennti þ.a.l. heldur ekki að blogga
Það voru nefnilega próf í janúar, 3stykki í eiginlega 4 fögum og þessi próftíð var algjört hell
Fyrsta blokkin hjá mér endaði um mánaðarmótin okt-nóv eftir mánaðarlestur undir lífeðlisfræðipróf sem gekk bara sæmilega, en þetta var stærsti áfanginn sem ég hef klárað hingað til, 21 ECTS, og ég hefði alveg verið til í að fá betri einkun í honum, en ég gerði mitt besta.
Síðan eftir það tók við blokk 2, frá nóvember til janúar, sem var eingöngu til upplestrar fyrir janúarprófin. Ég var mjög samviskusöm, vaknaði alla virka daga snemma á morgnanna og lærði anatomi (líffærafræði), fósturfræði og vefjafræði til þrjú-fjögur á daginn, og síðan til tíu-ellefu á kvöldin í janúar. Þetta gekk svo vel að ég ákvað að skrá mig í pínulítinn kúrs af 3. ári til að taka með, etologi = atferlisfræði. Mér var ráðlagt að taka þennan kúrs með þar sem hann var aðeins 3 ECTS og væri mjög léttur og prófið krossapróf með hjálpargögnum. Það gat nú ekki verið mikið mál og ég þurfti aðeins að mæta hálfan dag 1x i viku till þess að sitja fyrirlestra í þessu fagi.
Eins og ég sagði áður þá gekk lærdómurinn bara glimrandi vel, þrátt fyrir endalausa mygludaga heima, og má segja að ég hafi verið samfleytt í prófalestri í 4 mánuði!! Maður var skiljanlega orðinn frekar lúinn á þessu en hafi það sem gulrót að reyna að standa sig í þessum stóru og mikilvægu fögum.
Síðan kom janúar, neikvæði mánuðurinn. Ég þurfti að fara út til Dk á nýársdegi, eftir samt yndislegt 2ja vikna jólafrí, en hluti af fríinu fór samt í próflestur. Fyrsta prófið mitt var 14. Janúar i vefjafræði og fóstufræði saman. Dögunum fram að því eyddi ég í vefjafræðisalnum í að æfa mig í að greina sýni og var orðin bara nokkuð sleip í því að mínu mati, en ég eyddi öllum virku dögunum í þetta frá opnun til lokunar á salnum.
Síðan kom prófið og ég var full af bjartsýni. Ég byrjaði að taka skriflegt próf sem gekk bara vel, en þegar það kom að verklega hlutanum, sem fólst í því að greina sýnin, þá fór allt úr bönunum hjá mér
Prófið var þannig uppbyggt að það voru 8 stöðvar með 1-2 sýnum og nokkrum spurningum sem við áttum að greina og svara á 3 mínútum (hver stöð var s.s. 3 mínútur). Sýnin voru allt önnur og með aðrar litanir heldur en sýnin sem við höfðum notað í tímum og æft okkur á og ef ég náði ekki að sjá strax út úr hverju sýnið var þá gafst varla tími til þess að skoða sýnið og svara spurningunum. Þannig að ég þurfti að giska á slatta því ég var alltaf að falla á tíma. Ég var ekki alveg sátt eftir þennan hluta prófsins, fannst mér ekki hafa gengið svo vel. En síðan kom á daginn að flestir höfðu átt í vandræðum með það sama og ég, okkur fannst nú þessi verklegi hluti ekki endurspegla kunnáttu okkar. Ætlaði bara að tækla hin prófin í staðin.
Ég lærði á fullu fyrir þau. Etologi prófið var 22. janúar, daginn fyrir stóra anatomiprófið. Ég var frekar stressuð yfir því að það væri daginn fyrir stærsta prófið, en stappaði í mig stálinu að þetta væri nú auðvelt krossapróf og öll hjálpargögn leyfileg. Ég var búin að lesa allt efnið, glósa aðeins úr því og merkja það þannig að auðvelt væri að leita í gögnunum. Skellti mér í prófið og ætlaði að rimpa þessu af, við fengum 3 tíma til þess að taka það, áður höfðu alltaf verið gefnir 4 tímar í þetta próf en kennarinn hafði sagt að flestur væru búnir eftir 2 tíma og stytti því próftímann. Hann sagði jafnfram að það væri alltaf rosalega lítið fall í þessu fagi hjá honum. Þetta voru bara allt mjög uppörvandi fréttir, en...síðan var þetta næstum því erfiðasta próf sem ég hef farið í á ævinni
Krossarnir voru rosalega svínslegir og ekki í neinu samræmi við það sem kannarinn hafði sagt né í samræmi við sýnipróf. Það var svakalega erfitt að finna svörin í hjálpagögnunum og ég sat sveitt alla 3 tímana við að fletta öllu upp en náði samt ekki að finna nærri því allt. Niðurstaðan var s.s. sú að mér gekk alveg ömurlega í þessu prófi
Reyndar var allur árgangurinn fúll útaf þessu prófi og sendi kvörtunarbréf til kennarans og ég veit ekki hvað og hvað.
Daginn eftir var síðan komið að aðalprófinu, anatomi. Það byrjaði með skriflegum hluta sem mér gekk bara ágætlega í. En verklegi hlutinn var síðan 20 stöðvar með líffærum þar sem átti að greina 2-3 atriði á hverri stöð og svara spurningum á 2 mínútum á stöð!! Fólki gekk ekki svo vel með þennan hluta prófsins, þar á meðal mér. Þetta var alltof stuttur tími, NB meira að segja styttri heldur en í vefjafræðiprófinu til þess að svara öllum þessum spurningum á 2 mínútum. Ekki hjálpar það þegar maður hugsar á íslensku og þarf að umorða það á dönsku og muna latnesku heitin. Þetta var samt í fyrsta sinn sem prófið var með þessum hætti, hingað til hafa alltaf verið munnleg próf, en þau tóku alltaf svo langan tíma og erfitt var að bera nemendur saman því fólk fékk mis erfið efni á prófinu. Þannig að þetta próffyrirkomulag var hannað til þess að hægt væri að keyra prófið á stuttum tíma og á einum degi vegna stækkandi árganga í dýralæknanáminu. En mér fannst þetta nú ekki alveg nógu vel hannað hjá þeim. Í undirbúningnum fyrir prófið voru þeir alltaf að stytta tímann sem við áttum að fá og þetta var síðan alltof stuttur tími á hverri stöð. Held að þeir þurfi að endurskoða þetta og leiðinlegt að hafa þurft að vera tilraunadýr í nýju próffyrirkomulagi sem virkaði ekki svo vel
Þannig fór nú það og þetta er ástæðan fyrir neikvæðninni sem kraumaði í mér í janúar. Ég hafði verið svo bjartsýn og fannst ég hafa lagt hart af mér fyrir þessi próf og síðan gekk mér alls ekkert svo vel
Ég er ennþá að bíða eftir einkunum, en til þess að ná prófunum þarf maður að hafa staðist bæði skriflega og verklega hlutana. Ef svo fer að ég falli í vefjafræði/fósturfræði eða anatomi þá þýðir það sumarpróf í ágúst og færi þá allur júlí í að lesa fyrir það (er í skólanum til enda júní)
En maður þarf bara að taka því ef það verður þannig.
En núna er kominn febrúar (mánuðurinn minn) og ég er strax farin að vera miklu jákvæðari

Mér líst ljómandi vel á blokk 3 sem byrjaði í gær. Ég er að byrja í ónæmis-, veiru- og meinafræði, held að það séu allt mjög skemmtileg fög.
Ef ég næ prófunum þá er ég komin með fullt af skemmtilegum plönum fyrir sumarið, sem ég þyrfti samt að velja heilmikið úr þar sem sumarið eru bara 8-9 vikur hjá mér.
Í vetur hef ég verið að taka bóklegt nám frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri sem heitir Reiðmaðurinn og þurfti að taka próf þaðan í desember og fékk hæðstu einkunina
Mér finnst það nám rosalega skemmtilegt, fræðist alveg helling um hestana. Þetta eru 4 annir, 2 ár, en stóran hluta námsins, verklega hlutann, þarf ég að taka seinna. Áfanginn sem ég kláraði fyrir jól fjallaði m.a. um uppruna hestsins, sögu, byggingu, atferli, umhirðu og umgengni, gangtegundirnar, ásetu o.fl. Áfanginn sem ég byrjaði síðan í núna eftir áramót fjallar um heilbrigði og hirðingu hesta, kröfur til aðbúnaðar, hófhirða, járningar, kynbætur, frjósemi og uppeldi o.fl. Síðan er eins og ég sagði fullt af reiðtímum þar sem farið er í ásetu, taumsamband, jafnvægi, gangskiptingar og fullt af öðrum hlutum sem ég þarf að fá að taka seinna til þess að klára námið.
Það er búið að vera frekar kalt hérna í Danmörku að undanförnu og við erum alltaf að spara kyndinguna, fengum í þokkabót endurgreiddan hita eftir árið
En þessi sparnaður lætur mann þurfu klæða sig betur þegar maður er heima og þá er nú heppilegt að eiga ullarsokka og mömmu sem prjónar á mann lopapeysur
Ég keypti líka svona rúm fyrir köttinn til að hengja á ofninn svo að hann geti kúrt þar sem er hlýast.
Jæja ég læt þetta nú nægja í bili, enda tel ég þig nú bara vera hetju ef þú hefur náð að lesa þig í gegnum þetta allt. Reyni hér eftir að blogga oftar svo að færslurnar verði ekki svona svakalega langar.
Kveðja Stína jákvæða
P.s frekar fyndið en stjörnuspáin mín á mbl.is í dag endaði á þessum orðum: ,,Jákvæðni þín og bjartsýni geta áorkað miklu". Það er greinilega ekki spurning að ég þarf að vinna í jákvæðninni og bjartsýninni

-Ég í nýju lopapeysunni frá mömmu-
-Ég og Þór-
-Laugaland um jólin-
-Gróðurhúsin-
hehe. Ég gat þó reddað mér eitthvað með að fá peninga fyrir skólabækur sem ég seldi.

























































































































